|
12.01.2008 13:08:20 / Elka
Skráning á Æskan og hesturinn . Tekið er við skráningu á Æskan og hesturinn fram að aðalfundi. Kári: 8980327 Erla: 8995226
»
07.01.2008 21:57:47 / Elka
Fimmtudaginn 10. janúar klukkan 20:00 verður haldin fundur um starf vetrarins. Meðal annars sem verður er skráning og umræða um æskuna og hestinn. Vonumst til að sjá sem flesta. Guðleif, Kári og Erla.
»
05.01.2008 21:29:27 / Elka
Jæja þá er komin ný æskulýðsnefnd hjá Mána.
Þau eru Kári og Erla úr Grindavík og svo Guðleif Bergsdóttir. En ef þið hafið einhverjar hugmyndir um að gera þetta árið þá endilega komið með einhverjar hugmyndir.
»
15.12.2007 01:29:24 / bryndisla
Þeir sem eiga eftir að sækja peysur mega vinsamlegast sækja þær á morgun Laugardag á Elliðavöllum 11.
»
28.11.2007 01:56:51 / bryndisla
Peysurnar eru komnar. Það má nálgast þær hjá mér. Ég bý á Elliðavöllum 11 í Keflavík ( sími 893 3088 ). Ég get ekki afhent peysurnar frá föstudeginum 30.nóv til þriðjudagsins 4.des. Kveðja Bryndís Fráfarandi Æskulýðsnefnd vill þakka fyrir frábært samstarf. Krakkar haldið áfram að vera svona dugleg að stunda æskulýðsstarfið hjá Mána. Takk fyrir okkur. Kveðja Bryndís, Gunnar, Haukur og Sigrún
»
11.11.2007 15:53:09 / bryndisla
Máni vann Æskulýðsbikarinn í ár. TIL HAMINGJU KRAKKAR !!!!!
»
21.10.2007 23:00:08 / bryndisla
Loka dagur til þess að skila inn peysustærð er þriðjudagurinn 23.okt næst komandi.
»
15.10.2007 00:00:46 / bryndisla
Þar sem stjórn Æskulýðsnefndar Mána er að hætta störfum eftir 3ja ára starf, langar okkur að gefa VIRKUM félagskrökkum flíspeysu merkta Mána. Til að geta kallast VIRKUR félagskrakki þarf viðkomandi að hafa tekið þátt í starfi Æskulýðsdeildarinnar að minnsta kosti 2 sinnum sl. vetur. Peysurnar eru frá Regatta í stærðum 104 / 116 / 128 / 140 / 152 / 164 / 176 / S / M Við biðjum virka félagskrakka að skrá hér á bloggið nafn og stærð á peysu. Þeir sem eru ekki vissir í hvaða stærð þeir eru geta farið í Útivist og sport og mátað peysu þar. Vinsamlega setjið inn nafn og stærð fyrir föstudaginn 19. okt
»
14.06.2007 01:23:36 / bryndisla
Hér er opin umræða, fyrir þá sem vilja, um
Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna.
»
08.05.2007 23:34:16 / bryndisla
| Fjölskyldureiðtúr |
| |
| Fjölskyldureiðtúrinn á vegum Æskulýðsdeildarinnar verður
laugardaginn 12. maí. |
| Riðið
verður í Leiruna, þar verður stoppað, farið í leiki og
grillað. |
| Lagt
verður af stað frá Reiðhöllinni kl 13:30 |
| Ef veðrið
verður ekki gott þá verður farið í stuttan útreiðatúr og síðan
grillað í reiðhöllinni. |
| Allir
velkomnir með og ekki gleyma góða
skapinu. |
»
23.04.2007 13:28:45 / bryndisla
Æskulýðsnefnd Mána
hefur verið boðið að sjá um sjoppuna á Íþróttamóti Mána næstu
helgi. Allur ágóði sjoppunnar rennur beint til
Æskulýðsdeildar Mána. En þar sem Æskulýðsnefndin getur ekki
séð ein um sjoppuna allan tíman óskum við eftir hjálp frá
foreldrum, ungmennum og unglingum. Þeir sem geta aðstoðað
vinsamlega hringið í Bryndísi í síma 893 3088 eða látið vita
af ykkur hér á blogginu.
Kveðja
Æskulýðsnefnd Mána
»
16.04.2007 01:43:52 / bryndisla
|
ÓVISSUFERÐIN
SUMARDAGINN FYRSTA |
|
Jæja þá er komið að okkar
frábæru óvissuferð og hefur skráningin gengið mjög
vel |
|
|
Hér eru smá upplýsingar um
ferðina: |
|
- Mæting við
Félagsheimilið kl 09:00 |
|
- Lagt verður
af stað kl 09:15
STUNDVÍSLEGA |
|
- Heimkoma kl.
20:30 - 21:00 |
|
- Taka þarf með
sér hlý föt (klæða sig eftir veðri), eitt létt nesti, Sundföt og að
sjálfsögðu góða skapið, |
|
| |
|
|
Verðið í þessa mögnuðu ferð
er aðeins 1.500 kr og er innifalið í því rúta, hádegismatur,
miðdegiskaffi, kvöldmatur og aðgangur inn á einhverja staði
??????????????? |
|
|
1.500 kr þarf að greiða í kvöld (þriðjud.) 17. apríl frá
kl. 18:30-19:30 í hesthúsinu hjá Gunna og er það staðfestingin
í ferðina svo það er vissara að gleyma því
ekki |
|
»
07.04.2007 16:22:47 / bryndisla
Nú
fer að líða að okkar frábæru óvissuferð og er skráning hafin.
Þeir sem eiga eftir að skrá sig í óvissuferðina skrái sig hér
eða í síma 893 3088. Óvissuferðin er sumardaginn fyrsta
fimmtudaginn 19. apríl.
Þeir sem ætla að vera með verða
að vera búin að skrá sig fyrir mánudaginn 16. apríl
Nánari upplýsingar um tíma ofl.
verður auglýst þegar nær dregur.
»
31.03.2007 12:34:57 / bryndisla
|
Páskabingó |
| |
Okkar
árlega páskabingó verður í félagsheimili Mána þriðjudaginn 3. apríl
kl. 19:00. Verð á bingóspjaldi er 100 kr. |
|
| |
Einnig
verður skráning í okkar frábæru
óvissuferð. |
Vinsamlega látið þetta berast
»
19.03.2007 09:07:48 / Beggi
Jæja þá er mótinu lokið og hægt er að sjá allar upplýsinigar um
það hér
Ég vil þakka öllum þáttakendum fyrir frábærann dag
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|